← Til baka

Veðrið

Komið út

Annað

Ferðaveður byggt á leið, tíma og veðurspá.

Af hverju skiptir þessi Teskeið máli?

Veðurspár gefa manni mikið af gögnum, en ekki alltaf ákvörðun. Fólk þarf oft ekki að vita nákvæmlega vindátt, úrkomumagn og hitastig. Það þarf að vita hvað veðrið þýðir fyrir það sem það er að fara að gera. Er síðasti öruggi sjéns að leggja af stað heim úr útilegunni að renna út? Er óhætt að keyra með hjólhýsi? Þarf barnið regngalla? Er séns að grilla? Má mála pallinn? Er vit í að hengja út þvott? Þarf að gera aukaráðstafanir fyrir veisluna um helgina?

Tilbúin lausn

Veðrið í Teskeiðinni breytir veðurspá í praktísk svör við því sem þú ert að fara að gera. Það getur tekið mið af staðsetningu, tíma, leið, bíl, hjólhýsi, kerru eða öðrum búnaði. Svo segir það þér hvað er skynsamlegt næsta skref. Dæmi um verkfæri: Ferðaveðrið. „Hvenær er síðasti öruggi sjéns að leggja af stað heim úr útilegunni?“ Tekur mið af leið, vindátt, vindstyrk, bíl og búnaði í prófílnum þínum. Út að leika. „Hvað þarf barnið að vera í?“ Grillveðrið. „Er þetta grillkvöld eða vesen?“ Pallamálningin. „Er nógu þurrt til að mála úti?“ Þvottasnúruspáin. „Er vit í að hengja út þvott?“ Veisluveðrið. „Þurfum við að gera aukaráðstafanir fyrir veisluna?“ Dæmi um svör: „Volvo XC90 og hjólhýsið þitt. Síðasti skynsamlegi sjéns er 12:30.“ „Settu barnið í regngalla.“ „Grillaðu frekar á morgun.“ „Ekki mála pallinn í dag.“ „Leigðu tjaldið núna ef þú getur afpantað síðar.“ Af hverju Teskeið? Ekki fleiri kort og tölur sem fólk þarf að túlka sjálft. Bara skýrt svar við spurningunni: Hvað á ég að gera?

Aðrar hugmyndir