Alvöru tilboð
HugmyndÚtgjöld
Bara góð tilboð. Beint á vöruna. Engin leit að vöru sem reynist svo auðvitað vera uppseld.
Vandinn
Góð tilboð leynast út um allt, en það er ótrúlega leiðinlegt að þurfa að elta þau á samfélagsmiðlum, í tölvupóstum, auglýsingum og á vefsíðum verslana. Stundum smellir maður á „geggjað tilboð“ og lendir bara á forsíðu. Stundum er varan uppseld. Stundum er afslátturinn ekkert sérstakur. Og stundum nennir maður einfaldlega ekki að leita lengur.
Möguleg lausn
Tilboðsteskeið sem safnar saman alvöru tilboðum frá verslunum á einn stað. Bara tilboð sem standast skilyrðin fá að birtast. Þau þurfa að vera góð, til dæmis 50% afsláttur eða meira, skýr og beintengd við vöruna sjálfa. Ef varan selst upp á tilboðið að hverfa sjálfkrafa. Hægt væri að sía tilboðin eftir tegund, stærðum og öðrum praktískum atriðum beint í Teskeiðinni, þannig að fólk þurfi ekki að grafa sig í gegnum endalausar vörusíður til að finna eitthvað sem passar. Þetta á ekki að vera endalaus tilboðssíða með öllu mögulegu. Þetta á að vera lítil, skýr og þægileg Teskeið fyrir fólk sem vill vita hvar góðu kaupin eru án þess að grafa eftir þeim.
Aðrar hugmyndir
Upplýsingaflóðið, úff
Safnar póstum og skilaboðum frá skóla, íþróttum og tómstundum í eitt einfalt yfirlit.
Maki / kæró
Hjálpar pörum að rækta sambandið, prófa eitthvað nýtt saman og muna að hlúa að hvort öðru.
Verkefnin
Sameiginlegt yfirlit yfir verkefni, úthlutanir, verklok og stig.
Gjafir og óskir
Óskalistar og gjafasaga fyrir fjölskyldur, svo það sé auðveldara að vita hvað á að gefa og hvað var gefið síðast.
Lánað og skilað
Haltu utan um hluti sem þú lánar eða færð lánaða.
Útlagt og endurgreitt
Haltu utan um það sem þú leggur út fyrir aðra, hvað er búið að endurgreiða og hvað er enn opið.
Heimilið
Dreifðu heimilisstörfum á fjölskylduna á sanngjörnum og gagnsæjan hátt.
Afmæli og viðburðir
Settu inn aldur, áhuga, fjölda gesta og budget og fáðu hugmyndir að viðburði sem passar við tilefnið.
Sagan okkar
Lifandi lífssaga sem byggist upp smátt og smátt, með sögum, myndum, stöðum og augnablikum úr lífinu.
Umönnun
Fyrir fólk sem heldur umönnuninni gangandi saman.
Veðrið
Ferðaveður byggt á leið, tíma og veðurspá.
Þriðja vaktin
Lausn í mótun fyrir verkefni og ábyrgð sem safnast upp utan hins sýnilega skipulags.
Gæludýravaktin
Halda utan um fóðrun, gönguferðir og dýralæknaverð gæludýrsins.
Mótavaktin
Heldur utan um sjoppuvaktir, gistivaktir, akstur og önnur foreldrahlutverk í kringum mót og viðburði barna.
Út að leika
Sendu leikboð á barnið, ekki á rétta foreldrið. Kerfið finnur hver er með barnið hverju sinni.
Bókhaldið
Einföld VSK-vinnubók fyrir reksturinn.